Frumburðurinn minn...Guðrún Halla Jónsdóttir
...átti afmæli í gær og nú er hún orðin 26 ára þessi elskaÞað er svo skrýtið að ég man í smáatriðum eftir þessum dögum 17. og 18. febrúar 1982.
Ég var auðvitað búin að bíða spennt eftir komu þessa merkilega barns í marga mánuði en hún lét ekki bara bíða ftir sér í 40 vikur, heldur bætti við tveimur í viðbót og degi betur og loks þegar hún taldi ástæðu til að láta sjá sig, minnti hún á sig með léttu sjóvi, svona ef ske kynni að móðir hennar héldi nú að þetta yrði létt verk....
Það byrjaði að blæða hjá mér að kvöldi 17. og ég í frumbyrjuhysteríu hélt ég væri dauðvona og barnið líka...mér var hins vegar bara skutlað inn á deild og sagt að þetta væri bara eðlilegt, síðan var ég með hríðar í rúman sólarhring og fékk svo fínu stelpuna mína í fangið kl. 20.27 að kvöldi þess 18.
Elsku Maríanna mín, takk fyrir að koma inn í líf mitt og vera frumburðurinn minn,- þú ert yndisleg, ég elska þig óumræðilega mikið og er ofboðslega stolt af þér og því að fá að vera mamma þín.
Við erum aðeins of líkar til að samskipti okkar hafi alltaf verið dans á rósum en þú varst amk. hressilegur unglingur, það verður ekki annað sagt!!!
Það að eiga barn á þessum degi, gerði það að verkum fyrstu árin amk. að ég hætti að eiga afmæli, því allir í fjölskyldunni mundu eftir hennar afmæli og hringdu eða komu þá en mundu svo svona í blálokin að líklega þýddi þessi dagur að ég yrði ári eldri á morgun og ég fékk eitt knús svona í lokin;-)
Þannig er það ekki lengur, ég á AFMÆLI í dag og hef sko alveg fundið að fólk man eftir mér, takk fyrir allar fallegu kveðjurnar og knúsið og elsku Vibba, Sirrý, Kata, Gunnhildur og Dilla takk fyrir flottu gjöfina,- hlakka til að fara með ykkur í stelpuferð í Kringluna til að spandera af gjafakortinu**** takk og aftur takk!
Guðfinna mín gaf mér tertusneið fyrir sýninguna á sunnudaginn og Maríanna mín ætlar að bjóða mér út að borða í kvöld, takk elskurnar mínar;-)
Minni á að nú eru bara ÞRJÁR sýningar eftir af Með táning í tölvunni, föstud. 22. feb., sunnud. 24. feb. og föstud. 29. feb. og allar sýningarnar byrja hálf níu.....
Koma svo, þið getið pantað miða í síma 4822787.
Þið sem eruð búin að koma úr mínum vinahópi, takk kærlega fyrir afmælisgjöfina;-)
Knús og afmælisblöðrukossar til ykkar allra og sérstaklega þeirra sem kvitta.
Spakmæli dagsins fann ég í uppáhaldsbók og ætla að gera mitt besta til að fara eftir; Hamingjan vex á okkar eigin akri og hana er ekki hægt að tína í annarra görðum....
Frú Mary....Guðrún Halla Jónsdóttir
...er fædd og spriklar nú með félögum sínum í stóra leikhúsinu við Sigtún öll fimmtudags-, föstudags- og sunnudagskvöld næstu vikur!Ekki gekk nú fæðingin alveg þrautalaust, límið á heila mínum hefur eitthvað þornað og textinn var mun lengur en áður að festast þar en það er komið....
Ég tók mig til á síðustu æfingu fyrir general og hrundi niður stigann frá hliðarsviði niður í smink og uppskar bólginn, snúinn og bláan fót og hélt reyndar á tímabili að ég væri brákuð eða í versta falli brotin.
Þá voru það snillurnar Guðfinna og Svana sem tóku fótinn í gjörgæslu, Guðfinna nuddaði á mig bólgueyðandi sem Svana sótt heim til sín og svo var lappargeyið sett í fjólubláan sokk af Guðfinnu og skór bannaðir það sem eftir stóð æfingar og kælipoki frá Svönu settur við í öllum höngsum á hliðarsviði...
Svo var ég næstum borin út í bíl og skipað að sofa í frystinum, ja næstum því,- amk. troða fætinum í klakapoka og sofa þannig....
Viti menn eftir þessa aðgerð alla, sjóðheitt bað og höfuðnudd daginn eftir var ég bara í fínu formi;-)
Ennþá aðeins bólgin og ristin er í ýmsum fínum fjólubláum blæbrigðum en ég get gengið, leikið, hamast og hlaupið að vild,- ja svona eins og aldur leyfir!!
Frumsýning gekk fantavel enda var general skelfilegur;-) og sýningarnar sem komu þar á eftir voru flottar. Þær hafa slípast vel og nú eftir 5 sýningar eru kraftur og öryggi í hópnum enda viðbrögð í salnum eftir því...gaman að því!
En svona af því að ég ætla ekki að halda upp á þau tímamót í lífi mínu, að ná að klifra yfir fimmtíu ára múrinn, þá ætla ég að viðra hér hugmynd til ykkar sem lesið þetta blogg.
Hvernig væri nú að koma á sýningu hjá Leikfélagi Selfoss, gefa mér það í afmælisgjöf að hafa ykkur í salnum, koma svo niður á eftir og leyfa mér að knúsa ykkur,- jafnvel mætti kíkja á kaffihús eftir sýningu og fá sér kaffi/te,- hvað segið þið???
Þetta væri afar góð afmælisgjöf og myndi gleðja mig óumræðilega mikið!
Sýningarnar eru sem sagt um helgar, fim. fös. og sun. og hefjast stundvíslega kl. 20.30. Miðapantanir eru í síma 4822787....
Þetta var plögg dagsins og afmælisgjafaóskin mín;-)
Annars er bara brjálað að gera í vinnunni, ég sé börnin mín alls ekki nógu mikið og vona að nú fari að birta til í þeim málum,- ja nema Bergþóra mín er alltof langt í burtu og eina bótin í því, að ég veit að hún plumar sig fínt!
Þetta blogg átti að vera um allt annað en það kemur kannski seinna...
Knús og farsahlaup til ykkar allra og enn meir til ykkar sem kvittið, það er nefnilega svo gaman að fá kvitt!
Nú árið...Guðrún Halla Jónsdóttir
...er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka....Ekki það að ég sjái nokkuð eftir því, þetta var ágætt ár að mörgu leyti, annasamt og miklar breytingar gengu yfir hjá mér og mínum en hve gáfulegar þær voru á eftir að koma í ljós!
Ég fékk á tilfinninguna í lok síðasta árs að ég hefði fengið smá innsýn inn í líf þeirra sem búa í Beirút og öðrum stríðshrjáðum svæðum,- þvílík var sprengjugleðin á Selfossi.
Bara í húsunum tveimur hinum megin við götuna voru sprengdar 15 stórar kökur auk alls annars sem þar var sprengt,- við erum bara að tala um tvö hús.....Og það sem meira er, kökunum var stillt upp mín megin við götuna,- svona ef það skyldi nú fara fram hjá mér og hundinum að þeir væru að sprengja....
Er þetta ekki komið út í öfgar þetta sprengibrjálæði, má ekki koma upp einhverjum sprengigörðum á afviknum stöðum í hverju bæjarfélagi og þar gætu klikkhausarnir hist og puðrað upp leikföngunum sínum og hinir horft á úr hæfilegri fjarlægð og losnað við mengun og hávaða?
Mér datt meira að segja í hug svona meðan helv... hávaðinn var mestur, að ef einhvern tímann væri hægt að skjóta einhvern og komast upp með það, þá væri það um miðnætti á gamlárskvöld...
En nýja árið er fokið inn og ég held þetta verði gott ár, ár hagsældar og gleði, ár ástar og ánægju og enn meiri flutninga og breytinga...Gaman að því!
Ég strengdi tvö áramótaheit og lagði grunn að því þriðja,- sem þið eigið að hjálpa mér með;-)...
1. Ég ætla að bjóða sjálfri mér á þriggja vikna spænskunámskeið á Spáni í sumar eða haust.
2. Ég ætla að hætta að vera fat&fortysometing og verða f&f....mamma og pabbi ákváðu fyrri hlutann, ég ætla að verða fimmtug í febrúar ef Guð lofar en hitt effið megið þið finna út fyrir mig!....
Takk fyrir að lesa og kvitta ef þið eruð svo góð að gera það og megi nýtt ár verða ykkur gjöfult og hamingjuuríkt, fullt af leiklist, vináttu og fjöri...
Oddur minn takk fyrir heimboðið, læt örugglega sjá mig en veit ekki með skólann,- held ég sé of mikil gunga til þess...Gott að heyra af Stúfnum hennar Margrétar(kemur mér reyndar ekkert á óvart!)
Knús á ykkur öll og munið að brosa, það er meinhollt...
Á jólunum...Guðrún Halla Jónsdóttir
...er gleði og gaman fúmm fúmm fúmm;O) Þetta söng Kristjana vinkona mín á sínum dásamlegu jólatónleikum og hafi ég fundið votta fyrir jólaskapi, þá kom það þá...
Ekki þurfti ég að kvarta yfir vondum félagsskap um jólin, það voru átta sem sátu til borðs heima hjá mér á aðfangadagskvöld, börnin mín yndislegu, Agla mín ömmustelpa, Ingi minn fyrrverandi og svo Anna sænska fósturbarnið að ógleymdum Kisa sem telst sá níundi í þessum góða pakka!
Við breyttum hefðum í tilefni af nærveru Önnu og höfðum hlaðborð með hreindýrafille, bayonneskinku, síld, ostum, grænmeti, ávöxtum, berjum og öðru sem tilheyrir góðum mat, þetta heppnaðist afar vel og vakti lukku hjá öllum,- verður líklega endurtekið...
Ég persónulega var hrifnust af hreindýrinu og myndi sætta mig við það eingöngu....
Þetta voru mikil pakkajól og til marks um það, tók það um tvo og hálfan tíma að taka allt saman upp!!
Ég fékk margt eigulegt þar á meðal 5 bækur,snyrtivörur, geisladisk, gjafakort, tyrkneskt tesett, kjól, leggings, bol, grifflur og hálsmen.
Svo fékk forvarnafulltrúinn 2 léttvínsflöskur og ostakörfu frá vinnuveitandanum;o)!
Svo var árlegt jólaboð hjá Kristni bróður á jóladag og var það ánægjulegt að vanda, það er svo gott og gaman að hitta fólkið sitt svona allt undir sama þaki en það gerist afar sjaldan.
Það tókst reyndar ekki alveg núna, það vantaði stóran hluta af Haddýjar legg af hópnum þar sem Haddý og Gunnar voru erlendis sem og Árni og Sibba og fjölskyldur þeirra og Jón Fannar, Anna og stelpurnar voru á Akureyri.
En Hafrúnar fjölskylda og Halldórs fjölskylda björguðu heiðri leggsins;-)
Svo varð litla ömmustelpan mín fjögurra ára í gær og hélt upp á afmælið hjá mér með pompi og pragt tvisvar...fyrst vinkonuafmæli kl. 11 og svo ættingjaboð kl. 2.
Auðvitað fékk hún fullt af pökkum og var afar hamingjusöm litla skottið þegar hún loksins gafst upp og sofnaði um miðnætti....
Ég hins vegar bíð enn eftir rólegheitastundinni sem ég sá fyrir mér að jólin byðu upp á, það glitti aðeins í hana í gærkvöldi en þá ákvað ég að hætta að stjana við aðra og fara í pásu eftir 20 manna afmælisveislu...
það gekk ekki betur en svo að fyrst ég tók ekki til eftir veisluna, þá bara var það ekki gert!
Þetta getur verið pirrandi en ég mun hefna mín í ellinni!!! Og það styttist sko óðum í hana haha......
Vona að hátíðin sé ykkur góð og þið farið varlega í kræsingarnar, gleðileg jól og takk fyrir samveru og/eða önnur samskifti á árinu sem er að líða. Jólaknús og færeyskt kram til ykkar allra.
P.s. Mun strengja nýársheit í næsta pistli og gera svo mitt besta til að standa við það...helming þess mun ég næsta örugglega geta staðið við...hitt er undir ykkur komið!
Búin að finna...Guðrún Halla Jónsdóttir
...íslensku stafina;-)!Við erum enn bara í rólegheitagírnum, veit ekki hvort það verða keyptar margar jólagjafir hér, ætli þær verði ekki sóttar korteri fyrir jól í Kringluna eins og venjulega...
Hér er yndislegt haustveður, svalt og logn en ekki mjög jólalegt um að litast.
Kannski þess vegna sem jólaandinn er svona lítill í mér, Sigfríður er reyndar ekki mikið skárri, hún svaf af sér lungann úr deginum í gær og ég las 436 bls. reyfara!
Kannski þurftum við bara svona hvíldarlotu fyrir atganginn sem framundan er...
Hörður vinur minn varð pabbi í gær, eignaðist litla stelpu sem fæddist kl. 06.06 með opin augu, verður líklega athugul sú stutta;-) Til hamingju ljúfurinn!
Jæja best að skella sér í sturtu og tygja sig af stað, við ætlum að búa niður á Amager það sem eftir lifir ferðar og þar með brestur á með Striklabbi og Tívolídásemdum....ristaðar möndlur, jólaljós og jólalög, súkkulaði með rjóma og auðvitað HM!!!!
Svo verður litla prinsessan hennar Hafrúnar skírð í dag, hlakka til að sjá nafnið hennar birtast á blogginu, Til hamingju með daginn elsku Hafrún og Siggi,- verð þarna í anda;o)....
Knús og kram allesammen, takk fyrir að lesa og þið sem nennið að kvitta fáið extra knús;O)
Stundum er gott....Guðrún Halla Jónsdóttir
ad vera ekki á stadnum... Vid Sigfrídur erum sem sagt komnar til Køben og sluppum tví vid óvedrid en høfum í stadinn enga íslenska stafi....Tad var tveggja tíma seinkun á flugi en vid sluppum tó betur en teir sem ætludu med morgunflugi til Køben, teir bidu í 10 tíma!
Allt út af einhverju foktjóni sem vard á vélinni sem átti ad flytja dansktyrsta íslendinga til fyrirheitna landsins....
Vid erum enn bara á náttføtunum ad slaka á heima hjá Lindu og ekkert byrjadar ad kaupa jólagjafir eda skoda Tívolí...tad kemur ad tví;o)
Vona ad tid hafid tad gott í vonda vedrinu og enginn hafi ordid fyrir tjóni, er allt í lagi med tig Bergthóra mín?
Ha' det godt...knus og kram allesammen;o)
Ég er komin...Guðrún Halla Jónsdóttir
...í jólafíling er sungið í útvarpinu og ég reyni og reyni....Það kemur kannski á jólastrikinu í Köben, þangað ætlum við Sigfríður á morgun og jollast þar í nokkra daga.
Við ætlum að heimsækja Lindu vinkonu mína og hennar fjölskyldu, versla svolítið, skoða jólaTívolíið, borða danskt og jamm bara anda danskt...ég elska danaveldi;-)
Litla fallega frænka mín er fædd, hún ákvað að heiðra föður sinn með því að stimpla sig inn á afmælisdaginn hans,- þær verða ekki flottari 35 ára afmælisgjafirnar.....Til hamingju enn og aftur Hafrún og Siggi
Eins og alltaf þegar maður þarf ekki á aukaútgjöldum að halda, þá bilar e-ð og enn og aftur sá þvottavélin um það... nú fékk ég nóg og henti henni og keypti mér nýja vél,- hún er svo flott að ég býst fastlega við að hún brjóti saman líka og raði í skápa...allt í lagi að láta sig dreyma amk!
Bergþóra mín er líka búin að vera "biluð" síðustu mánuði eftir að hún fór í botnlangauppskurð í apríl(henni verður samt ekki hent!!!), samgróningar og alskonar viðbjóður og í gær fór hún aftur í aðgerð, nú til að taka hitt örið og alla samgróningana...vonandi tókst þetta vel, hún hefur ekki getað æft eða hreyft sig almennilega síðustu 8 mánuði.
Hún liggur heima með hálfopinn og blóðugan kviðinn og getur sig varla hreyft,- pabbinn dekrar við hana og hleypur við minnsta kall;-)
Það er eins gott að þetta verði orðið gott fyrir jól, annars eru jólahláturgusur ala Bergþóra bara bannaðar...
Kolla leikfélagsdóttir mín fann mig aftur,- ljúfan mín við munum að sjálfsögðu smala í stelpuleikfélagsboð á páskunum, borða ólívur og drekka hvítt,- kannski verðum við bara enn að leika...þá kemstu í leikhúsið okkar;-) Jólaknús til þín!
En gott í bili, hafið það gott í jólastressinu og munið að brosa og knúsa fyrir jól,- það léttir lund...knús og kram allesammen
Það er komið...Guðrún Halla Jónsdóttir
...jólaeitthvað og stressið að hellast yfir landslýð...nema mig,- virðist alveg ónæm þetta árið;-) Vona að ég muni að halda jólin, svona barnanna vegna...Ég ætlaði að blogga í gær, af því þá hefði mamma mín orðið 79 ára en svo fór dagurinn e-n veginn framhjá mér í öðru stússi og ekkert blogg fæddist.
En ég hélt samt upp á daginn með mömmu í huganum, kveikti á kertum og borðaði mandarínur,-við gerðum það svo oft á þessum degi. Mér finnst alltaf þessi dagur hafa sérstakan blæ söknuðar og nostalgíu og nú orðið elska ég minningabíóið mitt með mömmu og mandarínunum...
Ég eignaðist ekki litla frænku í gær eins og ég hafði spáð, hún virðist ætla að ákveða alveg sjálf komutíma sinn og er það kannski ávísun á sjálfstæði litlu dömunnar í framtíðinni;-)
Mamman(Hafrún systurdóttir mín) ætlaði henni að mæta 30. nóv svo hún yrði í takt við bræður sína, sem eru fæddir 30.9. og 30.10. en sú stutta svaf það af sér og hefur líklega bara haft gaman af!
Ég á eftir að senda afmælisknús um víðan völl og er að hugsa um að gera það hér með til allra nóvemberafmælisbarnanna sem ég þekki; Jóhanna mín varð 25 síðasta miðvikudag(ég gleymdi þér ekki, fann bara ekki netfangið og kemst ekki á bloggið...knús til þín ljúfan!), Gugga vinkona átti afmæli 19. knús á hana, Dilla mín, Vala vinkona og Maja mín Gunnars allar 14. nóv, Leifur í Klauf og Sammi Erlings 12. nóv., Páll Ásgeir 10., Geir Óttarr og Dóri Braga 6. , Hafrún 2. og Siggi Illuga 1. nóv....bara afmæliskoss á allan pakkann!
Svo átti Begga vinkona afmæli á laugardaginn og fær risastórt knús og kram(jólasveinninn þinn kemur með næstu ferð!)
Ég held þetta sé gott í bili, er að vinna í því að stytta bloggin mín og hafa þau kannski aðeins tíðari í staðinn;-)
Lifið, njótið, lesið og brosið
Hálka og rigning....Guðrún Halla Jónsdóttir
...er ömurleg samsetning, amk. í myrkri að morgni dags! Get þó varla kvartað, veðrið hér er víst hátíð miðað ofsann sem t.d. grundfirðingar búa við þessa stundina....Pollýanna blívar!Ég hef undanfarna mánuði verið eitthvað pirruð í augunum, mismikið þó en þegar ég er á fundum þar sem notaðar eru glærur, sem ég verð að lesa ef ég vil vera með í partíinu, sjá það sem gerist á sjónvarpsskjánum, hvað er framundan á veginum þegar ég er undir stýri,- þá finn ég oft til í augunum, verð rauðeyg og líður oft eins og augun séu full af sandi.
Á fimmtudaginn ákvað ég að fara í sjónmælingu og jafnvel endurnýja gleraugun sem Kisi "át"(rústaði) á nagtímabilinu sínu...
Blessuð konan sem sá um að sjónmæla mig spurði í miðri mælingu ,,hvernig komstu?", "bara á bílnum" sagði ég alveg grunlaus um ástæðu spurningarinnar... veistu að þú ert stórhættuleg í umferðinni svona og hefði mátt hirða af þér skírteinið....Ó er það, ég sé nú ekkert svo illa, er það? Jú góða mín, það gerirðu!
Ég sem sagt endaði með gleraugu á nebbanum og sá þá allt í einu ýmislegt sem ég mundi ekki til að hafa tekið eftir(séð) áður eins og inn í híbýli fólks, götumerkingar, skilti á húsum og......... Kannski ekki svo vitlaust að hafa svona glerverk framan í sér;-)
Nota þau reyndar mest sem hárspöng því ég get ekki notað þau þegar ég les eða vinn við tölvuna en þetta er voða sæt spöng,- dýr auðvitað en líka krúttleg!
Ég var búin að kvíða fyrir helginni, sá fyrir mér tiltekt og þrif, þvotta og önnur almenn leiðindi auk þess sem börnin mín yrðu út og suður í vinnu, æfingum og ...og ég myndi varla sjá þau,- þetta rættist auðvitað en samt varð þetta fínasta helgi.
Ég fór á æfingar báða dagana, gaman að vanda og svo eftir æfingu á laugardaginn fórum við Kisi upp í sveit að hitta Unni vinkonu mína og hennar búalið en ég mælti mér mót við þau á Sólheimum, þar sem við skoðuðum jólamarkaðinn í Völu og þarna var nú margt fallegt og fínt....
Ég keypti ekkert í þetta skipti, finnst alltaf svolítið erfitt að kaupa e-ð svona í fyrsta sinn sem ég skoða...
Unnur bauð svo upp á heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur þegar heim var komið, hýjasintur og epli í krús og kertaljós,- jólin komu aðeins inn á gólf þá, enda Unnur komin í heilmikinn jólagír og getur smitað hörðustu antijólista eins og mig!
En bara í smástund, mín jól koma yfirleitt klukkan sex á aðfangadag og þá ekki fyrr en eftir vænt angistar- og ógleðikast mánuðinn á undan:-(
Kisi minn naut þessarar stundar í sveitinni í botn enda fékk hann að vera óbundinn úti og auk þess tveir aðrir hundar að leika við,- það var afar glaður hundur sem lá með trýnið í kjöltu mér á leiðinni heim og þurfti mikið að spjalla....
Í gær settum við Sigfríður svo í dugnaðargírinn þegar við komum heim, hún frá því að keppa í handbolta og ég af æfingu og þrifum allt hátt og lágt, settum í þvottavél og þurrkara og að lokum læri í ofninn.
Buðum síðan Maríönnu, Bergþóru og Öglu í mat og naut ég þess í botn að hafa öll börnin mín við matarborðið í einu,- gerist alltof sjaldan og er alltaf jafn dásamlegt.
Jamm ó jamm, allt hreint og fínt, börnin mín falleg og yndisleg að vanda, æfingar á góðu róli,- Mary mín að fæðast hægt og rólega, sem og hinar persónurnar og enn skemmtum við okkur konunglega yfir uppátækjum þeirra, þó við þekkjum orðið hvern brandara í kjölinn...
Sem sagt lífið er ljúft og ný vinnuvika hafin með fullt af skemmtilegum verkefnum;-)
Knús og kyss, takk fyrir að lesa og endilega kvittið, það er svo gaman að fá kveðjur frá ykkur!
Njótiði dagsins og smæliði framan í heiminn, það er svo hollt....
PS. Finnst alltaf jafn skemmtilegt þegar ég fæ kvitt frá gömlum vinum sem ég hef varla séð né heyrt í óratíma og ramba svo inn á bloggið mitt eftir að hafa gúgglað mig...
Nú síðast Sæmi og Geir Óttarr,- vona að þetta þýði að ég sjái þá, sem og aðra góða vini oftar en síðustu ár, amk. hér í kvittboxinu;-)
Púff púff....ég gleymdi laufabrauðsgerðinni í Krummahólum hjá stóru systur...er líklega ekki vinsæl á þeim bænum núna,- fyrirgefðu Haddý mín, ég skal aldrei gera þetta aftur;-) Og Unnur vill gjarnan vera með næst!
Hér fór fram...Guðrún Halla Jónsdóttir
...smá tiltekt,- bara svona til að sýna húsmóðurtaktana mína;-)Ég ákvað sem sagt, að henda út tenglum á blogg sem hafa verið dauð í nokkra mánuði, sem og þeim sem hafa lokað síðunum sínum fyrir mér....
Vona að ég móðgi engan en ég var bara orðin svo þreytt á því að fara bloggrúnt sem gekk út á "höfundur hefur læ..." eða sama færsla blasti við og ég las í júlí...
Þessum bloggurum verður samviskusamlega bætt inn aftur, ef ég get skoðað eða eitthvað gerist!
Annars er fátt að frétta, brjálað að gera á öllum vígstöðvum, vinnan er plássfrek í lífi mínu og nú hafa æfingar á leikritinu "Með táning í tölvunni tekið það litla pláss sem eftir var;-)
Eins gott að ég á afar sjálfbjarga börn og nægjusaman hund;-)
Er reyndar að fara austur á Klaustur um helgina með eyfellingum og viðhengjum,- þar ætlum við að borða villibráð og vonandi skemmta okkur ærlega...
Njótið þess að vera til,- knús á línuna og veriði nú góð við ykkur sjálf og alla hina....
Takk fyrir að lesa og kvitt væri vel þegið....
