Ţađ er...Guđrún Halla Jónsdóttir
...að koma helgi og enn skín blessuð sólin;-)Er að velta fyrir mér hvað þetta blíðukast stendur lengi,- er það kannski bév... peningaeyðsla að fara til útlanda í sól?
Ja ég amk. bjargast þá á því að ég mun varla liggja mikið í sólbaði, ef ég þekki mig rétt,- skoðunar og gönguferðir eru líklegri...það réttlætir fjárausturinn!
Já og það að vera með skemmtilegu fólki sem maður sér of lítið af.
Flyt vonandi á morgun og mun í kvöld, þegar það er staðfest, fara í leit að hjálpsömu fólki sem nennir að burðast með dót og kassa úr bílskúr upp á bílpall og af honum og upp í íbúð á annari hæð??? Sjálfboðaliðar?
Vona að þeir finnist og verði bara það margir, að þetta verði létt verk og fljótlegt(jafnvel löðurmannlegt!)
En hvort sem þið verðið í hjálpargír eður ei, knús og góða helgi!
Verđ ađ...Guđrún Halla Jónsdóttir
...deila þessu með ykkur;-)Ég hef mikinn áhuga á uppskriftum en nota þær sjaldan til annars en fá hugmyndir,- hér er aftur á móti síða sem mér líst svo vel á, að mig klæjar í puttana að prófa allar þessar girnilegu uppskriftir!
Ekki of flókið en virðist við fyrstu og aðra sýn bæði gott og hollt. Sem sagt, kíkið á www.CafeSigrun.com.
Þarna eru m.a. flottir hollustudrykkir í sólinni, fisk og kjúklingaréttir sem valda ánægjustunum bara við yfirlestur og frábærar brauðuppskriftir!
Verði ykkur að góðu elskurnar og sólarknús frá mér!
Sumir dagar...Guđrún Halla Jónsdóttir
...eru sólardagar, jafnt í sinni sem á skinni,- síðustu dagar hafa verið þannig hjá mér!Ég er á leið til Rhodos 21. júlí með Maríönnu, Öglu, Hjalta, Júlíönnu, Láru, Tristan, Valda og fullt af öðru góðu fólki og hlakka mikið til!
Var eiginlega búin að gefa það frá mér þar sem tilboðin á netinu voru svo óaðgengilega dýr en svo hringdi í mig engill af ferðaskrifstofunni í gær og bauð mér upp á tilboð sem ég gat ekki hafnað,- rúmlega helmingi ódýrara en fyrsta boð sem ég fékk!
Þarna ætlum við að vera í hálfan mánuð, sleikja sólina, skoða gömlu borgina(sem er víst óviðjafnanleg), vera í góðum hópi og njóta slökunar eftir mikið at síðustu mánuða...gaman gaman!
Þá er það í höfn, að ég fái íbúðina á Skólavöllum 8 í þessari viku og get líklega flutt á fimmtudaginn,- í síðasta lagi á laugardag;-) Það verður dásamlegt!
Síðustu dagar hafa verið ótrúlega heitir og langt síðan að maður hefur haft svona veður marga daga í röð,- ef þá nokkurn tíma?
Var bara í slökun út í garði með Kisa á laugardag og nokkrum styttri gönguferðum en á sunnudag fórum við Maríanna og Agla með Hjalta og Júlíönnu upp í Þrastarlund og fengum okkur ís og þaðan fórum við MÓ með stelpurnar og Kisa niður í Eyrarbakkafjöru og ætluðum að vera í svona klukkutíma meðan Hjalti kláraði e-r verkefni,- veðrið var hins vegar svo dásamlegt að við vorum þar í 4 klukkutíma að sulla í sjónum, skoða skeljar og kuðunga og leika okkur!
Maríanna, Agla og Bergþóra fóru síðan norður um kvöldið, þar sem amma Maríönnu var að deyja blessunin og er jarðarförin í dag.
Við Kisi erum því ein í kotinu og hann aleinn meðan ég er að vinna. Að vísu fer Brynjólfur snillingurinn minn með hann í hjólaferð á hverjum degi til að hann fái hreyfingu og útiveru, gott að eiga svona duglegan strák!
Þegar ég kom heim úr vinnu í gær um fimmleytið, var 25 stiga hiti og léttur andvari svo ég mælti mér mót við Írisi mína á Kaffi krús og við sátum þar á pallinum í tæpa þrjá tíma og nutum veðurblíðunnar og spjölluðum,- bara dásamlegt!
Það er gott að vera til þessa dagana, njótið þess að vera til og takk fyrir að vera hluti af lífi mínu! Knús á línuna....
Ţađ er...Guđrún Halla Jónsdóttir
kominn föstudagur og langþráð hvíld framundan.... ja nema ég verði svo heppin að fá íbúðina afhenta á morgunAnnars lítur út fyrir gönguferðir með Kisa, knússtundir með Öglu minni og kannski heimsóknir til vina og vandamanna,- gaman að því!
Síðustu helgar hafa farið í þrif, niðurpakkelsi(þetta orð er líklega ekki til en...) og kassaburð og reyndar sumir dagarnir á milli helga líka.
Mikið voðalega er leiðinlegt að flytja!
Ég valdi þetta þó sjálf og hef ekkert leyfi til að kvarta,- amk. ekki hástöfum.
Enn hef ég ekki fengið hó, um að nú megi ég flytja inn í íbúðina á Skólavöllunum og er að verða ansi langeyg eftir lykli og húsaleigusamningi, kannski er bros og þolinmæði lausnin á þessum pirringi eins og svo mörgum öðrum pirrrr....
Í augnablikinu er hugur minn út í heimi, mig langar að fara og sleikja sól og skoða nýjar slóðir, óskastaðir eru Ítalía, Rhodos eða bara Barcelona,- vill einhver koma með?
Knús og sólarkoss á línuna elskurnar og góða helgi!
Ekki dáin...Guđrún Halla Jónsdóttir
...bara flutt;-)Líklega besta lýsingin á lífi mínu þessa dagana, ég er sem sagt flutt úr norðrinu fagra og í óvissu og sól suðursins...
Er byrjuð að vinna hjá Reykjavíkurborg sem unglingaráðgjafi,- með aðsetur í þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis að Síðumúla 39.
Líst vel á samstarfsfólkið en lítt hefur reynt á hæfileikana, þar sem mjög svo rólegt er, meðan skólarnir eru í fríi.
Enn sem komið er, er ég mest í lestri á skýrslum og öðru sem ég þarf að kunna skil á, þegar lætin byrja í ágúst;-)
Ég bý enn hjá Maríönnu minni í litlu íbúðinni hennar, þar sem ég er flutt með allt mitt hafurtask af Grenivöllum, í bílskúr hjá Guggu vinkonu minni á Engjavegi og bíð nú óþreyjufull eftir að núverandi leigjandi flytji út úr íbúðinni á Skólavöllum 8, svo ég komist þar inn....
Eyddi dýrmætum sólardögum í pökkun og flutning fyrir norðan, var þar í hálfan mánuð og mátti m.a. moka út ónýtu dóti úr skúrnum mínum og senda beint á haugana:-( Þar hafði sprungið rör og nú er skúrinn minn lasinn og á leið í aðgerð.
Ég er búin að leigja hann með þeim skilmálum að leigjandinn fær að hafa hann í 1 ár gegn því að gera við hann, skipta um ofna, vegg og loftklæðningu, draga í nýtt rafmagn, mála og flota gólf. Við munum bæði koma vel út úr því,- held ég!
Íbúðina leigði ég svo líka til eins árs til að byrja með, þá set ég hana aftur á sölu og vona að markaðurinn hafi glæðst e-ð á árinu.
Mun líklega blogga e-ð í júlí, bara svona til að hafa eitthvað að gera....
Sólarknús á línuna og brosiði nú í sólinni;-)
Svo margt...Guđrún Halla Jónsdóttir
...að gerast að ég næ ekki áttum og snýst bara í kringum sjálfa mig með kvíðahnút í maganum....Ég veit að ég er að flytja suður yfir heiðar, undirbúa 60 manna veislu og ferma á Hvítasunnudag, pakka niður og þrífa/mála á Grenivöllum fyrir mánaðamót, finna nýtt húsnæði, gera við bílskúrinn minn og koma út úr honum dóti frá öðrum, vinna hér til 30. maí og byrja á nýja staðnum 1. júní... hjálp, vill einhver hjálpa mér að fela mig fram í júlí eða eitthvað;-)
Það hefur margt gerst síðan síðast, Bergþóra mín er orðin nokkuð brött og að verða búin í skólanum og á leið til Spánar með vinum sínum!
Hún tók við enn einum bikarnum á fimmtudaginn þarsíðasta og nú sem Íþróttakona umf. Selfoss, ótrúlega dugleg stelpa sem ég á! Ég er líka afar stolt;-)!
Sigfríður nældi sér í brons á fimleikamóti um helgina, var í þriðja sæti á trampolini skvísan mín!!
Brynjólfur bauð upp á trommukonsert á laugardaginn á vortónleikum Tónlistarskólans og fór pabbi hans til að sjá hann og sagði stráksa hafa verið flottan og hafa fengið mikið lof frá kennaranum sínum,- það kom mér ekki á óvart!
Frumburðurinn minn stendur sig vel að venju og er líklega að fara alfarið í aukastarfið, þ.e.a.s. hætta í skóbúðinni og vinna eingöngu í Rauða húsinu og verður þá yfirþjónn á sinni vakt.
Mér líður dálítið eins og fimmta barnið mitt hafi flutt að heiman um helgina en þá hætti ég í stjórn Bandalagsins eftir 15 ára setu þar, skrýtin tilfinning en ég veit að þessu barni mun vegna vel og ég mun heimsækja það reglulega!
Ég var sem sagt á BÍL þingi á Hallormsstað, sem í alla staði tókst frábærlega og þar stóð ég upp úr stól formanns og afhenti Togga hlutverkið, sem ég er nokkuð klár á að hann passar vel í.
Þetta var afslappað og ljúft þing og ótrúlegt samansafn af snillingum samankomið á þessum litla bletti.
Þetta er ekki bara sérdeilis fallegur staður, heldur var fundurinn góður og skilvirkur, fundarstjórn afar góð, skemmtiatriði fá en eðalgóð, veislustjórn ekki síðri og maturinn dásamlegur! Ofan á þetta allt fékk ég Einar minn í heimsókn bæði kvöldin og það skemmdi ekki ....
Jamm, það er þrátt fyrir allt gaman að lifa og full ástæða til að brosa og láta fólkið sitt vita hvað það er mikils virði;-) Takk fyrir að lesa og kvitta og sumarknús á línuna!
Stundum vćri...Guđrún Halla Jónsdóttir
...gott að hafa vængi ja eða vera Superman(woman) og geta flogið á örskotsstundu frá A til B.Bergþóra mín fór upp á spítala í gærkvöldi með mikla kviðarholsverki eftir að hafa verið sárþjáð í vinnunni allt kvöldið og kom þá í ljós að hún var með botnlangabólgu.
Læknirinn hennar Jón B. Stefánsson ákvað að bíða ekki til morguns með að skera, þó slíkt sé oft gert og hafi komið til tals, heldur ákvað að setja hana í aðgerð strax, þar sem það gæti valdið vandræðum í sambandi við barneignir síðar meir að geyma það.(Hann er kvensjúkdómalæknir;-))
Ekki nóg með að hann hafi komið til að gera aðgerð um miðnætti í gær heldur hringdi hann í mig klukkan eitt til að segja mér hvernig gekk. Svona þjónusta er til slíkrar fyrirmyndar, að ég var eiginlega orðlaus!
Hann sagði mér reyndar að skurðstofuhjúkkan hefði verið Hjördís mamma Júlíu vinkonu minnar og hún hefði sko aldeilis látið hann heyra það ef hann klúðraði einhverju!! Þau fá bæði STÓRT knúshrós frá mér, sem og allir aðrir sem komu nálægt aðgerðinni og hugsa um stelpuskottuna mína;-)
Samkvæmt heimildum af vaktinni á sjúkrahúsinu líður Bergþóru ágætlega núna og ekki búist við neinum vandkvæðum, Guði sé lof fyrir það!
En mikið ósköp þótti mér erfitt að geta ekki verið hjá henni, þó ég viti að ég hefði ekkert gert af viti, þá hefði verið gott að geta haldið í höndina á henni og segja eitthvað hughreystandi og smá væmið.... gangi þér vel ástarengill eða...
En hún veit að hún fær sendar fallegar hugsanir og knús frá okkur sem erum ekki á staðnum og ég veit að Maríanna, Ingi, Tanja og allir hinir sem þykir vænt um hana og eru á staðnum, sjá um að knúsa hana í beinni!
Annað er nú ekki að frétta utan að ég fór á leiksýningu í gær hjá leikklúbbnum Sögu, sá 5 stelpur(afbrigði af 7 stelpum) og skemmti mér ágætlega,- handritið er reyndar þunnt og hefur illa þolað að láta krukka í sig.
Leikararnir stóðu sig flestir með prýði, sérstaklega þó Linda Brá, Sunna Björk og Elín.
Var að uppgötva að ég gleymdi að óska ykkur gleðilegs sumars og geri það hér með; GLEÐILEGT SUMAR og takk fyrir veturinn! Knús og kram og takk fyrir að kvitta og jú Sirrý mín, við ætlum að búa á Selfossi;-)
Loksins loksins;-)Guđrún Halla Jónsdóttir
Já það hefur farið lítið fyrir mér að undanförnu, var meira að segja að hugsa um að týnast alveg... en hér er ég og bara til að láta vita að ég er lífs!!Stundum fer maður í naflaskoðun, veltir fyrir sér ýmsu í henni versu og hvað hlutverki maður gegni og síðustu tveir mánuðir hafa verið þannig hjá mér, sumum finnst það ærin ástæða til bloggs en ég var aðeins of djúpt hugsi til að geta boðið öðrum með!
En það hefur margt á daga mína drifið, ég lék og lék, fór til útlanda, sótti um vinnu á tveimur stöðum, fundaði með öðrum stjórnarmönnum BÍL, horfði á góðu og yndislegu börnin mín(sem ég sá sem betur fer öll þessa mörgu daga síðan síðast) og vann og vann og lék við Kisa og.... hitti Einar;-)
Ég er víst ekki góður bloggari, hef engan áhuga á að segja ykkur hvað mér finnst um fréttir og pólitík, er enginn sögumaður í eðli mínu og núorðið of löt til að nota bloggið eins og staðreyndadagbók eins og ég ætlaði:-(...
Til hvers þá að blogga, jú ég vil ekki missa þessa tengingu við ykkur sem kvittið og hafið sýnt mér fádæma þolinmæði og tryggð í þessari þögn allri!
En áður en ég dett í næstu þagnarpásu ætla ég að upplýsa hér með,- ég er búin að fá vinnu og mun frá 1. júní starfa sem unglingaráðgjafi hjá Reykjavíkurborg!
Er reyndar ekki búin að finna íbúð en það hlýtur að reddast;-)
Knús elskurnar, takk fyrir að lesa og kvitta og munið að brosa í blíðunni...
Bara ađ...Guđrún Halla Jónsdóttir
...láta vita af gagnrýni sem Prímadonnur fengu á www.ruv.is /svæðisútvarp;-)Fékk bara nokkuð viðunandi dóm þar!
Bara grín, er að springa úr monti,- hún sagði mig mjög reyndan leikara sem væri að gera frábæra hluti í sýningunni;-)!!!
Jamm, ég er svoooo reyndur leikari að ég hef leikið í 8 sýningum í fullri lengd á þeim 22 árum sem ég hef verið viðloðandi leikhús...
Þar af eru 3 verk þar sem ég er í burðarrullu, annars hef ég verið í þægilegum smárullum sem lítt reyna á!
En það er samt gaman ef fólk heldur að maður sé hokinn af reynslu....
Knús á línuna og takk fyrir kvittin elskurnar mínar, njótiði lífsins eins og ég!
Ţori ekki...Guđrún Halla Jónsdóttir
...annað en setja eitthvað á blað,- dóttir mín hefur talað;-)!Af okkur er allt gott að frétta, finnst ég vera svolítið í lausu lofti núna, veit ekki hvort ég kem til greina í starf sem ég sótti um, er ekki búin að selja íbúðina eða kaupa aðra á Selfossi og svo er ég búin að frumsýna og þá verður eitthvað tómarúm, sem ég veit að einhverjir lesendur þessa bloggs kannast við.
Annars er lífið bara dandalas flott og ég búin að ná mér af kvefflensu sem lagði mig í síðustu viku,- ja svona að mestu amk... ég átti dásamlegan afmælisdag fyrir viku, fékk ótrúlega mörg símtöl, sms, knús og bloggkveðjur í tilefni dagsins og meira að segja pakka frá syni mínum,- hann er svo mikið æði;-)
Hann gaf mér bók sem heitir Dásamleg mamma og aðra sem heitir frábært grín um fimmtugt! Ég benti honum á, að ég væri ekkert orðin fimmtug en þá glotti sláninn minn og sagði; þú þarft að venja þig við"!!
Leikhópurinn í Prímadonnum söng afmælissöng og Aglan mín líka.... hvílíkt dásemdarbarn!
Svo kom leikdómur í dag og þar stóð að hlutverk Florence(hinnar fjörgömlu og snakillu) væri eins og skrifað fyrir mig!!! Á maður að taka þessu sem hrósi eða???? Haha ég hló eins og hýena þegar ég las þetta!
En meira næst, mun vonandi blogga þéttar á næstunni,- ef ég hef um eitthvað að skrifa og þá kannski eitthvað af viti...
Takk fyrir kvittin og ammmmæliskveðjurnar elskurnar mínar, njótið þess að vera til og knúsið hvert annað! Hér er risastórt bloggknús frá mér til ykkar;-)
