Ţađ styttist...Guđrún Halla Jónsdóttir
... þangað til ég fæ hana Bergþóru mína í heimsókn, jibbí hlakka til;-)Nú hélduð þið örugglega að ég væri að tala um NY ferðina en já það styttist líka í hana, gaman gaman!!!
Dagurinn í gær var stórskemmtilegur, ég eyddi lunganum úr honum á námskeiði fyrir stjórnendur hjá Akureyrarbæ og fannst dagurinn mjög vel heppnaður í alla staði.
Kisi var reyndar ekki hrifinn af þessu, þýddi að hann fékk ekki að koma með í vinnuna og auðvitað þakkaði hann fyrir sig með því að eyðileggja eins og einn skó!
Einar heldur því reyndar fram, að ég láni honum skóna áður en ég fer á morgnana svo ég hafi afsökun til að kaupa mér nokkur pör í New York,- hvaða della;-)
Svo þegar ég kom heim í mitt hlýja hosiló(Einar minn, þó það sé kalt á Akureyri, þá er hlýtt á Grenivöllum 24!) og hafði knúsað Kisa og farið með hann í góðan labbitúr, fékk ég upphringingu frá Kristjönu minni, hún á Akureyri að stuðningsradda fyrir Heru Björk og eini sénsinn að hitta mína var að koma á tónleika.
Auðvitað fór ég á tónleika, var miðaselja og fékk báða diskana hennar Heru í laun, ekki amalegt það!
Það var frábært á tónleikunum en enn betra að hitta Kristjönu þó stutt væri, knús ljúfan mín;-) Þú kemur í kúrerí og notalegheit í næstu ferð,- það er alveg nauðsynlegt...
Takk fyrir öll kommentin ykkar, já Vibba mín ég veit þú getur keypt fyrir mig Lush,- þú ert alltaf að dekra við mig bestust mín!
Hörður og Einsi, við plöggum þessi Firefoxmál þegar við hittumst næst,- þið haldið að ég sé mjög sjóuð orðin ef þið haldið að ég geri svona hjálparlaust!
En þarf að hætta núna, er að fara í ammælisveislu í vinnutímanum! Gaman hjá mér!
Og svo er það annað námskeið og skemmtileg helgi framundan;-)
Njótið helgarinnar og verið góð við allt og alla, knús frá mér!
Tölvan mín...Guđrún Halla Jónsdóttir
...var með alvarlega garnaflækju sem lýsti sér í popupgluggum ofaní það sem maður var að vinna og ef ég skrifaði meira en 2-3 setningar, þá hurfu þær bara hvissbæng!!Svo fór hún í garnastyttingu(straujun á fagmáli) og kom aftur í gærkvöldi, tómleg og í meira lagi undarleg;-) Við erum þó að ná saman aftur og verðum ábyggilega ágætar vinkonur þegar líður á daginn...
Þið hafið líklega haldið að ég væri búin að gefast upp á dagbókarskrifum, aldeilis ekki,- ég bara gafst upp á að missa færslurnar mínar út hverja af annari.
Um helgina áttu tvær merkilegar konur afmæli og ein á mánudaginn og ættu allar skilið mörg knús, blóm og rúsínupoka með hnetum.
Fyrsta ber að nefna Gunnhildi vinkonu mína, sem fagnaði stórum áfanga og hélt upp á fimmtugsafmælið sitt á laugardaginn með pomp og pragt,- hún er ein af þeim sem elli kelling bítur ekkert á og er, var og verður sæt og yndisleg;-) Til hamingju með daginn vinkona, hlakka til að halda upp á hann með þér 18. nóvember!
Svo er það rúsínukrullan mín hún Guðfinna, hún er ennþá bara stelpuskott og hélt upp á 34 ára afmæli á sunnudaginn,- ég gat heldur ekki verið þar en ætla bara að knúsa hana þeim mun meir þegar við sjáumst næst,- knús og kyss ljúfan mín!
Og á mánudaginn var það svo hún Anna Guðný sem vinnur hér í Rósenborg og sér um Alþjóðastofuna,- hún er svo ung að það tekur varla að nefna það, nær ekki þrítugu einu sinni. Til hamingju líka Anna mín;-)
Helgin hjá mér var tíðindalaus að mestu, við Kisi fórum út á hundasvæði bæði á laugardag og sunnudag og hittum fullt af fólki og hundum,- mikið fjör og mikið gaman! Skrýtið hvað maður tekur mikið eftir hundum og hundaeigendum þegar maður hefur eignast dýr sjálfur, kunningjahringurinn stækkar og það er bara gaman...
Að öðru leyti fór helgin aðallega í að hafa það notalegt, taka til, þvo þvotta og kíkja í heimsóknir. Börnin mín fengu líka extra skammt af athygli, því um helgar er minna að gera hjá okkur öllum og meiri tími til að knúsast og spjalla.
Mér finnst hins vegar svo langt síðan ég skrifaði síðast, ég man varla hvort eitthvað hefur gerst sem til tíðinda getur talist.
Þó eignaðist ég nýjan yfirmann í gær, hún heitir Katrín og er jafnréttisráðgjafi enn sem komið er en verður deildarstjóri Samfélags og mannréttindadeildar, sem Húsið og ég komum til með að heyra undir. Líst vel á Katrínu og hlakka til að fá hana og forvarnafulltrúann hingað í Rósenborg en þær munu verða staðsettar hér.
Það styttist í draumaferðina til NY og ég er næstum farin að naga neglur af spenningi
ps Nei Jóhanna mín, ég hef ekki enn fengið pakka frá Lush og enda líklega með því að kaupa það bara í útlöndum!
New York, New York...Guđrún Halla Jónsdóttir
...hér kem ég og hlakka svoooo mikið til!
Já, ég er að fara til New York eftir 20 daga með honum Einari mínum og ætla að njóta þess í botn að skoða þessa stórkostlegu borg(sem ég hef ekki komið til í 24 ár), hitta Grétar frænda Einars og æskufélaga okkar og Finnu konuna hans og svo auðvitað skoða væmna kærastann minn svolítið betur;-).
Þetta er búið að vera í pípunum í smátíma en nú er ég sem sagt búin að taka ákvörðun, búin að fá pössun og kaupa miða og nú tel ég bara dagana eins og barn sem bíður jóla....
Hvað gerir maður í stóra eplinu annað en að hitta skemmtilegt fólk og vera rómantískur?
Ja, til dæmis skoðar maður víst mótorhjólabúðir(!), Chinatown, Broadway, Little Italy, Manhattan....búðir, kaffihús eða liggur bara í leti og nýtur þess að vera til... kannski sitt lítið af hverju!
Það rúmast fátt í huga mér núna annað en tilhlökkun og hugsanir um hvað þarf ég að taka með mér, hvernig geri ég þetta og þetta og þetta ........??? Velt og vagg í mínum skrýtna haus;-)
Þurfti samt að vinna í dag, eins og aðra daga og byrjaði daginn á því að kynnast Sap kerfinu,- mannauðs og bókhaldskerfi sem verið er að innleiða hjá Akureyrarbæ og verð að viðurkenna vanmátt minn á þessu sviði:-(.
Bjóðið mér frekar 100 pirruð ungmenni með 100 mismunandi þarfir og skoðanir, mun auðveldara að tækla slíka uppákomu!
Eins og ég sagði Gerði minni um daginn þá hafa augu mín þann leiða sið, að rúlla aftur í haus ef flókin stærðfræði verður á vegi mínum en gleymdi að bæta við, að þau eru enn fljótari að hverfa ef flókin tölvuforrit um bókhald birtast....
Þarna sat ég samt fram að hádegi og lagði mig fram um að vera gáfuleg í framan og hlusta af athygli en hugsa að kennaranum hafi helst dottið í hug hópur barna með athyglisbrest, frekar en virðulegir stjórnendur hjá Akureyrarbæ;-)
Fékk pylsur og gula ávexti í hádeginu í starfsmannamáltíðinni sem er alltaf á fimmtudögum(ekki eins slæmt og það hljómar!) og þar var rætt um málýskur og undarlegar nafngiftir og hlegið mikið.
Seinnipartinn fór ég á forvarnahópsfund á löggustöðinni sem gekk vel, flottur hópur með góða yfirsýn á vandann og hvernig á að tækla hann.
Síðasta verkið á vinnudeginum var að bóka nýjan leikhóp í Þalíu, frábært hvað salurinn okkar ætlar að verða vinsæll og ásetinn.
Kisi minn fékk ekki að vera með mér í vinnunni í dag og var frekar ósáttur þessi elska:-(.
Hann fékk margar gönguferðir í dag í sárabót, enda vorum við öll með samviskubit yfir annríki fjölskyldunnar.
Gaman að vera til, ég er hamingjusöm og vona að þið sjáið öll ástæðu til að brosa framan í heiminn, það er svo hollt og gott!
Knús og kram og takk fyrir að lesa og ekki síður kvitta... það er nóg að segja bara hæ eða eitthvað, engin þörf á meiru frekar en þið viljið;-)
Stundum líđur...Guđrún Halla Jónsdóttir
...mér eins og ég sé splittuð í tvennt, hluti af mér er svo syngjandi hamingjusamur með lífið og tilveruna,- á meðan hinn hlutinn er argandi pirraður yfir misrétti í heiminum og hrokafullu fólki sem leyfir sér að leggja aðra í einelti, bara af því það getur það...Vinnustaðurinn minn var svo sprolandi af lífi, hugmyndaauðgi og skemmtilegheitum, að ég hlakkaði til hvers dags.
Nú er verið að troða þar inn píramídaskipulagi, tilskipanaströggli og sumum er hampað á meðan aðrir verða fyrir einelti dauðans.... þoli ekki svona, arrrrg!
Ég verð ekki fyrir ósköpunum en þoli þau ekkert, þó ég sé ekki fórnarlambið. Það versta við svona undirróðurstarfsemi er hve lúmsk hún er og óáþreifanleg og þar af leiðandi erfitt að taka á málinu.
Vonandi tekst okkur að vinna okkur út úr þessu en er samt hrædd um að skemmdirnar sem unnar hafa verið á starfsandanum verði seint bættar að fullu.
Kannski rangt að fá útrás hér í opinberri dagbók en þetta litaði mjög daginn minn í dag og ég vil að dagbókin fangi líðan mína alla daga.
En ég er líka svo glöð, mér líður svo vel með það starf sem unnið er í Húsinu, menningarmiðstöð ungs fólks(n.b. þar er sko dásamlegur mórall!!), það er gott lífið heima hjá mér, dásamleg börn og æðislegur Kisi og svo er ég, ja bara afar lukkuleg með væmna sambandið mitt....þar með er það opinbert;-)
Við Kisi fórum í fyrsta skipti á hundasvæðið á Akureyri í dag, þar má hann hlaupa laus á stóru afgirtu svæði, hittir aðra hunda og getur látið eins og hann vill! Hvílík hamingja, ef hundar geta hlegið þá veltist hann um í dag...
Njótiði lífsins, veriði góð við næsta mann og knús og kram úr hundaparadísinni Akureyri
Já stundum....Guđrún Halla Jónsdóttir
...verður pirringur og óþol að stórri færslu, mörgum bréfum og allskonar uppátækjum,- hef sjaldan verið duglegri í útrásarverkefnum en um helgina!Auðvitað ganga svona pirringstímabil yfir eins og lægðir í veðri og stundum er nóg að fá falleg skilaboð á símann sinn, til að lífið sé flying fun again;-)
Óskaplega er nú hollt að fara út að hlaupa(ok...labba!)um leið og maður vaknar, jafnvel þó maður þurfi að hreinsa upp hundaskít og hrósa dýrinu fyrir dugnaðinn í þokkabót!!!
Við Kisi hittum tvo ketti og einn hund í fyrstu göngu dagsins og í hvert skipti mátti minnstu muna, að ég tækist á loft(bjargar mér stundum þyngdaraukning síðustu ára!).
Vinnudagurinn var rólegur og viðburðalítill ef frá er talið, að útlendingarnir okkar voru að pakka niður og fara á morgun, þeirra verður sárt saknað, enda stjanað við mig, með að bera í mig te og koma mér til að hlægja með fyndnum uppátækjum alla daga.
Þeir gáfu mér mynd af sér að skilnaði þessar elskur, vonandi koma þeir aftur og sýna Síamstvíburana fyrir landann.
Í kvöld talaði ég svo við frumburðinn minn heillengi, hún er að fara í atvinnuviðtal og er mjög spennt og mun ég krossa alla putta sem ég á, í von um jákvæð svör...
Spjallaði líka við hina stóru stelpuna mína á Selfossi og hún lét vel af sér eins og venjulega enda í hressilegu Halloween partýi um helgina;-)
Sem sagt rólegur og góður dagur hjá minni í dag og vonandi er það sama hjá ykkur sem lesið dagbókina mína, knús og kram elskurnar og gangi ykkur vel í því sem fyrir liggur.
Ég á....Guđrún Halla Jónsdóttir
svolítið bágt í dag:( Ég veit ekkert hvað er að angra mig þessa dagana, eirðarleysi og gífurleg þörf fyrir að skapa hrjá mig amk. en líka depurð og leiði.
Helgin hefur samt ekkert verið leiðinleg, ég hef skrifað mikið, þrifið, lesið og leikið við Kisa úti og inni.
Það má eiginlega segja að ég hafi vaknað í gærmorgun með ofboðslega uppsafnaða spennu í skrokknum, mig langaði að skapa, leika , skrifa, ljóða eða eitthvað en lét til að byrja með duga að fara í langa göngu með Kisa.
Talaði svo við Einar í smástund og það var ljúft að vanda en hann var bara of langt í burtu til að ná úr mér eirðarleysispirringnum....
Eins og alltaf þegar ég er heima um helgar, eyddi ég góðum tíma í þrif og tiltekt og í fyrsta skipti síðan Snúður hennar Bergþóru var hjá mér, var stiginn brjálaður moppudans allan tímann sem ég strauk yfir gólfin!
Auðvitað var þar Kisi á ferð, sem taldi einboðið að moppan væri leikfang sérstaklega ætlað honum;-) Hann er fyndinn og flottur hann Kisi minn!
Til að ná í skottið á sjálfri mér fór ég í langa kraftgöngu með Kisa og þá staðfestist að hann er með algjört músarhjarta, er skíthræddur við Glerána og vill alls ekki ganga við brúarhandriðið þegar við löbbum þar yfir en heldur ekki bílamegin ef það kemur bíll!!
Kristján Ingimars hringdi í mig rétt fyrir kvöldmat og bauð mér á sýningu hjá sér á Mike attack, sem ég þáði að sjálfsögðu glöð í bragði.
Ég bauð Ingu minni með mér og í stuttu máli sagt þá skemmtum við okkur konunglega, enda Kristján alveg stórkostlegur látbragðsleikari og þetta verk magnað og varla slappur punktur í sýningunni.
Verkið er sýnt á gamla vinnustaðnum mínum, sem ég hef ekki komið inn á síðan ég flutti með starfsemina um síðustu áramót,- breytingarnar eru mjög vel heppnaðar en salurinn er jafn loftlaus og fyrr!
Það var reyndar svolítið skondið að ég var með kvíðahnút í maganum allan tímann, ég var svo hrædd um að rafmagnið(sem er skelfilegt í húsinu) myndi klikka en hljóðmyndin í sýningunni er alveg hinn leikarinn í sýningunni og erfitt að sjá Kristján bjarga sér(þó hann sé snillingur) ef rafmagn eða hljóðmaður klikka!
Takk Inga mín fyrir að koma með mér, þú ert frábært deit og yndisleg vinkona;-) og Kristján takk fyrir boðið og óborganlega skemmtun!
Inga bauð mér svo í mat áður en ég hélt heim á leið og þar fékk ég flottan kjúklingarétt sem mun vonandi birtast hér e-n tímann;-) Takk Inga mín fyrir matinn og allt spjallið!
Þegar ég kom heim var Kisi bara einn heima enda börnin mín á tónleikum með Sign og Nevolution í Sjallanum og ekki von á þeim fyrr en undir miðnætti.
Við Kisi skruppum í kvöldpisssgöngu og þá gerði hann það sem hann gerir alltaf á kvöldin, velti sér í grasinu og ég alltaf á nálum um að hann stingi sig eða skeri á e-u helv... rusli,- hefur sloppið hingað til!
Fór snemma að sofa og vaknaði um átta til að skreppa í morgungönguna okkar Kisa og þar sem það er sunnudagur fór ég bara aftur að sofa og svaf til ellefu...
Las svo til tvö, fór í sturtu og göngutúr og ákvað svo í pirringi mínum að skrifa bréf og sögu,- það dugði ekki svo ég skrifaði aðra sögu og pússaði ljóð sem ég samdi fyrir nokkru;-)
Líður aðeins betur en fannst samt nauðsynlegt að elda flókinn mat til að fá enn meiri útrás og hér sit ég pakksödd eftir mat og uppvask og nú er bara pissgangan eftir af þessari helgi...
Guð geymi ykkur elskurnar, knús héðan úr látbragðsmenningunni í norðri
Kom þessu ekki inn í gær og ekki bætti það nú pirringinn haha!!! Held að tækniguðinn þoli mig ekki....
Í gćr....Guđrún Halla Jónsdóttir
...lofaði ég að setja uppskrift inn á bloggið í gærkvöldi en var svo uppgefin eftir vinnudaginn og hlaup með Kisa, að ég var sofnuð fyrir 11!En kannski var það líka af því ég sprautaði yfir mig bensíni í stað þess að gefa Yarra mínum sopann og varð hálf vönkuð af lyktinni...og í stað þess að fara strax í bað þegar ég kom heim, talaði ég í hálftíma við tvíburasálina mína sem á voða bágt núna með stóran plástur og lélega/enga hjúkku:-(
Kannski var ég líka bara í hálfgerðri fýlu, af því ég komst ekki í ammmælið hans Steina vinar míns, sem bauð mér að koma og fannst það skipta miklu máli að ég kæmi(bara endalaust sætur;-))
Hann er dásamlegur sögumaður og svo segir hann mér með reglulegu millibili að ég sé krútt, það er sko ekki amalegt! Steini minn til hamingju með ammmælið og þúsund og þrír kossar frá mér,- þú mátt líka koma í stelpupartý til mín á Akureyris og þá getum við sagt sögur....
Ef tvíburasálin kemur líka, þá getum við haft brjálaða söguhátíð með klósettálfum og simmepi! Ó hvað það væri gaman;-)
Dagurinn í gær var samt í senn erfiður og skemmtilegur, ég var kannski ekkert alveg búin að hrista af mér flensuna og var svona aðeins út á þekju en verkefnin sem biðu voru samt kláruð og það er það sem gildir, ekki satt?
Svo fór ég á opna æfingu hjá útlendingunum(dana og finna) sem hafa verið að æfa í Þalíu síðustu vikur,- sem sagt salurinn í Húsinu heitir Þalía og þar hafa verið tveir yndislegir leikarar að æfa látbragðsleik síðustu vikur undir stjórn Kristjáns Ingimarssonar látbragðssnillings.
Í fáum orðum sagt, ótrúlega skemmtileg sýning um síamstvíbura sem eru fastir saman og reka fornbókabúð, hugmyndin flott og úrvinnslan snilld, gaman gaman!
En já ég lofaði Jóhönnu minni uppskrift að namm mömmukjúklingi sem er oft borðaður hér og er algerlega heimasaumuð uppskrift og einföld með afbrigðum...
jamm taktu nú eftir ljúfan mín, hér kemur kjúlinn;
Fyrir þrjá nota ég 2 bakka af hlutuðum kjúklingi(helst leggi, læri og bringur með beini og húð) langódýrast þannig!
Ég tek fram ofnfast fat nógu stórt til að rúma allan kjúklinginn á einni hæð, set góðan slatta af ólívuolíu í botninn og raða svo kjúlla í og krydda með eðalkjúklingakryddi frá Pottagöldrum, köd og grill og svörtum pipar, sojasósu og helli meiri ólívuolíu yfir(auðvitað þarf að snúa kjúllabitunum og krydda báðum megin).
Síðan sker ég niður rauðlauk, tvö stykki og set út í fatið, sker niður sveppi, set í plastpoka með olíu og svörtum pipar og hristi þar til sveppirnir eru kryddaðir,- þá helli ég þeim yfir allt í fatinu.
Fatið er svo sett í 200°heitan ofn með blæstri(er þannig hjá mér) og látið dóla þarna í 40 mínútur. Á meðan býrðu til gott ferskt salat, t.d. spínat og tómata eða blandað salat með spínati, tómötum, gúrku, lárperu, vatnsmelónu eða berjum og fetaosti.
Með þessu sýð ég svo basmati hrísgrjón í pokum(2 pokar passa fyrir 3) og set líka olíu í vatnið ásamt maldon salti. Þetta er borið á borð með ást, sojasósu og vatni og slatta af góðum sögum dagsins....
Vona að þú getir notað þetta og þið hin sem lesið,- þetta var uppgötvað og notað sem hátíðamatur hér þegar við áttum ekki fyrir mat nema fyrstu 6-7 daga mánaðarins;-) Sem sagt ódýrt!
Vona að helgin verði ykkur góð og full af ást og dekri, knús á línuna

Nú er ég...Guđrún Halla Jónsdóttir
...komin í tilvistarkreppu, hvort á ég að hafa hundana mína stutta svo Hörður endi ekki í andnauð eða langa svo Dillan mín sakni mín minna... veit ekki?Kannski hef ég bara annan hvern stuttan og hinn langan,.... það var löng stutt heima í gamla daga og stutt löng stutt á símstöðinni þó það komi málinu auðvitað ekkkert við;-)
Kannski er símstöðin svona ofarlega í sinninu af því ég hef talað svo mikið í símann síðasta sólarhringinn og þó ég hafi oft lýst því hve mér leiðist slík iðja, þá var þetta voða væmið og skemmtilegt;-)
En aftur að Dills og söknuðinum, það er svo skrýtið þegar maður saknar einhvers(eins og ég Dillu) og fær svo að vita að viðkomandi líður eins, þá verður söknuðurinn mun bærilegri. Vitið þið hvað ég meina?
Sama er með þessa dagbók, það að skrifa allt sem dettur ofan í hausinn á mér og allt sem hendir mig yfir daginn, - er einhvern veginn svo gott fyrir sálina og ekki síst að skrifa af hreinskilni en vita samt að fullt af fólki les það.
Ég er búin að vera svo lengi fröken klakadrottning, lokuð á sjálfa mig en voða proff opin út á við,- núna líður mér bara vel og vil að öllum öðrum líði líka vel! Amk. þeim sem mér þykir vænt um og þeir eru sko margir.
Ég er búin að vera heima í dag, lagt mig í líma við að láta mér batna, lesa bækur, tala við börnin mín og Einar minn og svo hef ég spjallað heilan helling á msn við tvínurasálina mína með plásturinn og lélegu hjúkkuna, Jóhönnu mína og Írisi mína, á heilmikið í þeim öllum og finnst það æði!
Kisi minn er að verða búinn með vinstri framhandlegginn á mér og mun líklega takast á við hinn á morgun, þá gæti þessi eini putti sem ég á þeim megin verið í hættu;-)
Hver er Err??? ég þoli ekki þegar ég verð svona forvitin,- grunar einn en langar að fá staðfestingu! Annars svona ykkur að segja er þessi fjöldi putta sem flestir eru með, ofmetinn í meira lagi...
Það sést á þessum skrifum að ég hef verið að mestu leyti í rúminu í dag og er að verða hálfrugluð af inniveru,- var einhver að segja að hvíld væri holl??
Knús og kram elskurnar, veriði dugleg að spenna beltin þið eruð svo mikilvæg
Hann átti...Guđrún Halla Jónsdóttir
...afmæli í fyrradag, hann átti afmæli sjálfur....tralala. Já hann Oddur Bjarni vinur minn átti ammmæli og varð hálfsjötugur eða hálffertugur,- hvort segir maður um mann sem er 35?Hef heyrt hvor tveggja en það svo sem ekki málið heldur hitt, að ég vil óska þér til hamingju með daginn þó seint sé ljúfurinn!
Þar sem ég var of lasin í dagbókarskrif þann 10.10. ætlaði ég að bæta úr í gær en mundi eftir því þegar ég var að sofna í nótt og nennti þá ekki að krota pistil, það er gert nú og mundu bara að láta fólkið í kringum þig stjana við þig Oddur minn,- knús og kyss;-)
Hitt málið, já Hörður minn, Kisi er 5 mánaða hvolpur sem þessa dagana er að taka tennur og heldur að handleggurinn á mér sé naghringur(kolruglaður, handleggurinn á mér er auðvitað ekkert í hring!).
Ég held reyndar að ef ég færi út að ganga með kött, þá mætti hringja upp á geðdeild og panta pláss fyrir mig;-)
Njótiði lífsins, það geri ég, bara örlítið trosnuð á saumunum núna...
Finn mig knúna....Guđrún Halla Jónsdóttir
...til að reyna að hætta að langhunda, vil ekki valda vinum og vandamönnum andnauð eða þaðan af verra;-)Vona að þessi bloggpása sem ég tók, hafi dugað til að þú næðir andanum Hörður minn?
Pásan sú var svo sem ekki tekin af eintómri tillitssemi, heldur hef ég verið eitthvað slöpp síðustu daga og ekki haft orku í dagbókarfærslur.
Byrjaði með slæmum höfuðverk og beinapirringi á sunnudag, sem ég taldi bara leiða og saknaðarblús en það var víst ekki(amk. ekki eingöngu!)
Ég eyddi mánudeginum í hausverk, vinnu og bréfaskriftir til þingmanna í fjárlaganefnd, að ógleymdu hundauppeldinu sem tekur stóran part af vökutíma mínum núna...
Kisi litli er skemmtilegur fýr og mjög svo líflegur, vill sífellt vera í gönguferðum og boltaleikjum og er það auðvitað látið eftir honum,- enda litla barnið á heimilinu og því ofdekraður eins og oft er með slík börn....
Hann er auðvitað búinn að læra á stigann og neitar alfarið að sofa niðri, vill heldur sofa á ganginum fyrir framan mitt herbergi og fékk það í gegn án mikillar baráttu. Held honum finnist ég auðveldari viðureignar en flestum öðrum haha!!
Jæja að öðru, ég skrapp í höfuðborgina í gærmorgun með fyrstu vél, til að hitta fjárlaganefnd Alþingis og þurfti því að vakna klukkan 5 til að geta farið út með Kisa áður en ég fór í sturtu og skárri gallann fyrir ferðina(vildi ekki vera Vilborgu minni til skammar!).
Það er reyndar bara gaman að fara út að ganga áður en bærinn vaknar og ég er að hugsa um að gera meira af því!
Fundurinn með fjárlaganefnd, sem við Vibba og Embla sátum fyrir hönd BÍL, gekk að ég held mjög vel og vorum við nokkuð bjartsýnar að honum loknum.
Ég fór svo heim um miðjan daginn eftir skemmtilegt labb um Laugaveginn með Vibbu, þar sem nýjar búðir voru skannaðar og jafnvel togað í eina og eina flík...
Þegar heim kom fór ég í langa göngu með Kisa í ausandi rigningu og kulda, sem smá saman breyttist í slyddu og enn meiri kulda:-(
Við skruppum í vinnuna og vorum þar í tæpan klukkutíma, fórum síðan lengri leiðina heim og vorum blaut inn í bein þegar þangað kom.
Hef síðan verið að mestu undir sæng með hita, beinverki, hálsbólgu og á algerri skjálftavakt. Vona að þetta sé upp á við en ætla að taka því rólega á morgun, þar sem börnin mín eru svo dugleg að sjá um Kisa og gönguferðirnar hans..
Hef talað mikið við tvíburasálina mína þessa daga, hann fór í aðgerð í dag við kviðsliti og fær extra knús og orkuskot frá mér;-)
Knús elskurnar, veit þetta er enn í það lengsta en þið takið bara pásur inn á milli!! Smæliði framan í heiminn, það er svo gott;-)
