Ég var...Guđrún Halla Jónsdóttir

...klukkuð af Guggu vinkonu á E38... Þá tekur maður því og grefur upp e-ð sem ekki allir vita,- hvað sem það nú er!


1. Ég heiti í höfuðið á föðurömmu minni Guðrúnu og móðurafa mínum Hallgrími

2. Ég var búin að lesa allt bókasafn Austur-Eyjafjallahrepps þegar ég var 11 ára, meira að segja Ættbók hestsins!!!

3. Litlu puttarnir mínir heita Stubbur, Kubbur, Snúður og Vínarkaka;-) Þetta vita reyndar flest börn sem mig þekkja!

4. Öll eru þessi nöfn lýsandi og hægt að sjá nöfn þeirra með því einu að skoða þá,- ja nema kannski Vínarköku...það nafn kom til af því saumur á stúfnum minnir á vínflöskustút en ég var svo mikill áfengisandstæðingur að ég gat ekki hugsað mér það nafn!

5. Ég hef samtals átt 12 ketti (6 með Bergþóru) og auk þess um það bil 20 villiketti sem ég átti í hálfan sólarhring, þangað til að mamma fattaði hvað var í hitakompunni í kjallaranum heima!!!

6. Ég hef líka átt 3 hunda  sem hétu Ísleifur (kallaður Ísi), Sókrates og svo hann Kisi minn og tvö lömb sem hétu Króna og Túkall ( mamma þeirra hét Budda!)

7. Fyrsti kærastinn minn var kallaður Habbó og við ákváðum að gifta okkur þegar við vorum fjögurra ára og fórum til prestsins á Suðureyri til þess með Bjarna frá Vogi hringa í farteskinu( svona vindlamagabelti!!) Svo ákveðin vorum við í þessu, að við gengum alla leið heim til prestsins sem bjó á bæ rétt hjá Suðureyri sem heitir Staður,- löööng ferð fyrir lítil börn.

8. Ég er að flytja inn í íbúð á Skólavöllum 8 á Selfossi í kvöld! Allar fúsar hendur vel þegnar....

Held að mér hafi þarna tekist að finna til nokkur atriði sem ekki eru á almanna vitorði en sumir vita þetta þó líklega flest;-)

Í dag þarf ég eiginlega að kaupa mér sófa og sjónvarp, þar sem ég henti gamla sófanum mínum með tár í augum og sjónvarpinu með bros á vör...ég er haldin valkvíða á hæsta stigi og veit sannast sagna ekkert hvernig sófa ég á að kaupa, slíkt apparat er vandvalið þar sem það þarf að uppfylla svo mörg skilyrði.
 
T.d. vera fallegur og passa við það sem ég á fyrir, vera þægilegur og rúma amk. tvo liggjandi...., vera auðveldur í þrifum og svo þarf buddan mín að þola hann!

Sjónvarpið er minna mál, fólk má ekki verða þríbreitt í því, það má ekki vera rassmikið(sjónvarpið þ.e.a.s.;-)) og buddan þarf að þola það líka!

En það reddast eins og annað, knús elskurnar mínar og takk fyrir að kíkja hér inn,- gaman ef þið mynduð kvitta líka!

Fyrir átján...Guđrún Halla Jónsdóttir

...árum og hundrað og tíu mínútum kom dásemdastelpan mín Bergþóra Kristín í heiminn og hefur alla daga síðan verið foreldrum sínum, ættingjum og vinum til yndisauka og gleði,- til hamingju með daginn ljósið mitt ljúfaKoss, ég elska þig lengri leiðina til júpiter og til baka....(með viðkomu á Mars!)

Þessi fallega klára stelpa sagði fátt annað en ahaaa og uhuuu fyrstu tvö árin sín en hljóp um allt 9 mánaða og klifraði upp um allt án þess að velta fyrir sér hvernig hún ætti að komast niður aftur!
 
Oftast lét hún sig bara gossa...afleiðingarnar voru glóðaraugu, kúlur og risastórir marblettir!
 
Þriðja orðið sem hún sagði skýrt(fyrir utan mamma og pabbi) var gelato,- þá vorum við stödd á Ítalíu og hún bað um ís í tíma og ótíma!

Auðvitað á ítölsku, enda heillaði hún þjónana upp úr skónum sem stálu henni um leið og við komum með hana á veitingahúsið þar sem við borðuðum alltaf og svo kom hún fram með ísskegg og sleikjó!!

En að öðru, þó ég gæti rifjað upp ótal sögur af stelpunni minni með stóru skoðanirnar og einbeitta viljann....

Helgin var góð hjá mér þó enginn væri flutningurinn, fékk að vita á föstudag að dótið væri farið úr íbúðinni en sá sem tæmdi hana finndi engan til að þrífa... ég hélt að þá setti maður bara teygju í hárið, vatn í fötu og réðist á óhroðann en svo er víst ekki!

Vonandi tekst þeim að finna þrifakompaní, sem tekur skrúbberíið að sér, annars verð ég bara að gera þetta sjálf gegn leiguafslætti!

Ég lét þetta þó ekki á mig fá, eyddi laugardeginum í lestur og dund og gönguferðir með Kisa,- þó ekki langar enda fórum við í hálfgerða útilegu á föstudagskvöld í sælureitinn sem við fundum upp við Sog, ég með bók og Kisi ólarlaus að sulla;-)
 
Hann neitaði svo að fara heim og tók það mig tvo tíma að ná honum og koma á hann ól! Þá var hann  gauðdrullugur og lyktaði eins og fúamýri og endaði í hálftíma baði með sjampói og alles;-)

Á laugardagskvöld fór ég á Menam með Írisi, sátum lengi og borðuðum og töluðum og töluðum svo meira heima hjá henni,- umræðuefnin mörg en skólamál þó líklega fyrirferðarmest.

Færðum okkur til Guðfinnu um miðnætti og héldum spjallinu áfram góða stund,- alltaf gott að hitta snilldarstelpurnar mínar í Smáratúninu.

Í gær fórum við Kisi svo í Stokkseyrarfjöru og hvílíkur dásemdarstaður, held ég hafi sjaldan komið á fallegri stað. Kannski ótrúlegt, hvernig getur fjara verið svo spennandi?
 
Ég hugsaði þannig amk. en þarna er fjaran full af hraunbollum, ljósum skeljasandi, tjörnum og litlum grashólmum, að ekki sé nú talað um sjávar og fjallasýn;-)
 Ekki skemmdi veðrið, við vorum þarna í 20 stiga hita og hlýjum sjávarandvara. Já þetta var góð uppgötvun og verður örugglega sótt heim fljótlega aftur.

Fór svo og var hjá Sigríði Ósk litlu systur minni, sem liggur á Grensási með lungnabólgu.
 Hún var þar í lyfjadælueftirliti í byrjun viku og fór svo heim en var komin aftur degi síðar með bullandi hita og lungnabólgu.

Elsku stelpan mín, alltaf með einhverjar sýkingar og líður frekar illa á sálinni sinni. Hún var samt farin að hressast aðeins þegar ég fór í gærkvöldi og var mun hressari þegar ég heyrði í Haddý systur áðan.

Kíkti svo aðeins á Dillu mína og Ármann og hitti þar dauðþreytta og sólbrennda leikara, sem hendast út um allar trissur allar helgar og tvo daga í miðri viku með félögum sínum og sýna börnum landsins Dýrin í Hálsaskógi við mikinn fögnuð enda flott sýning. Sat hjá þeim í smástund og fór svo til Einars míns og náttaði þar.

Góð helgi liðin og nú styttist óðum í ævintýraferðina mína til Rhodos....

Meðan ég man, tvær uppáhaldsvinkonur mínar áttu afmæli á dögunum og ég gleymdi að smella inn kveðjum til þeirra hér en nú skal það gert, Elsku Vibba mín sem áttir afmæli 7.7. og Debbý sem áttir afmæli 10.7. innilega til hamingju með daginn og stórt knús til ykkar beggja.
 
Og líka til þín elsku BKI afmælisbarn sem nú ert orðin sjálfráða en þiggur vonandi áfram góð ráð frá mömmu;-)

Sólarknús á línuna, þetta blogg þarf líklega að taka í áföngum!!! Amk. ef maður heitir Hörður!

Ţađ er...Guđrún Halla Jónsdóttir

...að koma helgi og enn skín blessuð sólin;-)

Er að velta fyrir mér hvað þetta blíðukast stendur lengi,- er það kannski bév... peningaeyðsla að fara til útlanda í sól?

Ja ég amk. bjargast þá á því að ég mun varla liggja mikið í sólbaði, ef ég þekki mig rétt,- skoðunar og gönguferðir eru líklegri...það réttlætir fjárausturinn!
Já og það að vera með skemmtilegu fólki sem maður sér of lítið af.

Flyt vonandi á morgun og mun í kvöld, þegar það er staðfest, fara í leit að hjálpsömu fólki sem nennir að burðast með dót og kassa úr bílskúr upp á bílpall og af honum og upp í íbúð á annari hæð??? Sjálfboðaliðar?

Vona að þeir finnist og verði bara það margir, að þetta verði létt verk og fljótlegt(jafnvel löðurmannlegt!)

En hvort sem þið verðið í hjálpargír eður ei, knús og góða helgi!Svalur

Verđ ađ...Guđrún Halla Jónsdóttir

...deila þessu með ykkur;-)

Ég hef mikinn áhuga á uppskriftum en nota þær sjaldan til annars en fá hugmyndir,- hér er aftur á móti síða sem mér líst svo vel á, að mig klæjar í puttana að prófa allar þessar girnilegu uppskriftir!
 
Ekki of flókið en virðist við fyrstu og aðra sýn bæði gott og hollt. Sem sagt, kíkið á www.CafeSigrun.com.

Þarna eru m.a. flottir hollustudrykkir í sólinni, fisk og kjúklingaréttir sem valda ánægjustunum bara við yfirlestur og frábærar brauðuppskriftir!

Verði ykkur að góðu elskurnar og sólarknús frá mér!Glottandi

Sumir dagar...Guđrún Halla Jónsdóttir

...eru sólardagar, jafnt í sinni sem á skinni,- síðustu dagar hafa verið þannig hjá mér!Svalur

Ég er á leið til Rhodos 21. júlí með Maríönnu, Öglu, Hjalta, Júlíönnu, Láru, Tristan, Valda og fullt af öðru góðu fólki og hlakka mikið til!
 
Var eiginlega búin að gefa það frá mér þar sem tilboðin á netinu voru svo óaðgengilega dýr en svo hringdi í mig engill af ferðaskrifstofunni í gær og bauð mér upp á tilboð sem ég gat ekki hafnað,- rúmlega helmingi ódýrara en fyrsta boð sem ég fékk!

Þarna ætlum við að vera í hálfan mánuð, sleikja sólina, skoða gömlu borgina(sem er víst óviðjafnanleg), vera í góðum hópi og njóta slökunar eftir mikið at síðustu mánuða...gaman gaman!

Þá er það í höfn, að ég fái íbúðina á Skólavöllum 8 í þessari viku og get líklega flutt á fimmtudaginn,- í síðasta lagi á laugardag;-) Það verður dásamlegt!

Síðustu dagar hafa verið ótrúlega heitir og langt síðan að maður hefur haft svona veður marga daga í röð,- ef þá nokkurn tíma?

Var bara í slökun út í garði með Kisa á laugardag og nokkrum styttri gönguferðum en á sunnudag fórum við Maríanna og Agla með Hjalta og Júlíönnu upp í Þrastarlund og fengum okkur ís og þaðan fórum við MÓ með stelpurnar og Kisa niður í Eyrarbakkafjöru og ætluðum að vera í svona klukkutíma meðan Hjalti kláraði e-r verkefni,- veðrið var hins vegar svo dásamlegt að við vorum þar í 4 klukkutíma að sulla í sjónum, skoða skeljar og kuðunga og leika okkur!Svalur

Maríanna, Agla og Bergþóra fóru síðan norður um kvöldið, þar sem amma Maríönnu var að deyja blessunin og er jarðarförin í dag.
 
Við Kisi erum því ein í kotinu og hann aleinn meðan ég er að vinna. Að vísu fer Brynjólfur snillingurinn minn með hann í hjólaferð á hverjum degi til að hann fái hreyfingu og útiveru, gott að eiga svona duglegan strák!

Þegar ég kom heim úr vinnu  í gær um fimmleytið, var 25 stiga hiti og léttur andvari svo ég mælti mér mót við Írisi mína á Kaffi krús og við sátum þar á pallinum í tæpa þrjá tíma og nutum veðurblíðunnar og spjölluðum,- bara dásamlegt!

Það er gott að vera til þessa dagana, njótið þess að vera til og takk fyrir að vera hluti af lífi mínu! Knús á línuna....
 

Ţađ er...Guđrún Halla Jónsdóttir

kominn föstudagur og langþráð hvíld framundan.... ja nema ég verði svo heppin að fá íbúðina afhenta á morgunGlottandi

Annars lítur út fyrir gönguferðir með Kisa, knússtundir með Öglu minni og kannski heimsóknir til vina og vandamanna,- gaman að því!

Síðustu helgar hafa farið í þrif, niðurpakkelsi(þetta orð er líklega ekki til en...) og kassaburð og reyndar sumir dagarnir á milli helga líka.
 
Mikið voðalega er leiðinlegt að flytja!

Ég valdi þetta þó sjálf og hef ekkert leyfi til að kvarta,- amk. ekki hástöfum.

Enn hef ég ekki fengið hó, um að nú megi ég flytja inn í íbúðina á Skólavöllunum og er að verða ansi langeyg eftir lykli og húsaleigusamningi, kannski er bros og þolinmæði lausnin á þessum pirringi eins og svo mörgum öðrum pirrrr....Óákveðinn

Í augnablikinu er hugur minn út í heimi, mig langar að fara og sleikja sól og skoða nýjar slóðir, óskastaðir eru Ítalía, Rhodos eða bara Barcelona,- vill einhver koma með?Svalur

Knús og sólarkoss á línuna elskurnar og góða helgi!

Ekki dáin...Guđrún Halla Jónsdóttir

...bara flutt;-)

Líklega besta lýsingin á lífi mínu þessa dagana, ég er sem sagt flutt úr norðrinu fagra og í óvissu og sól suðursins...

Er byrjuð að vinna hjá Reykjavíkurborg sem unglingaráðgjafi,- með aðsetur í þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis að Síðumúla 39.

Líst vel á samstarfsfólkið en lítt hefur reynt á hæfileikana, þar sem mjög svo rólegt er, meðan skólarnir eru í fríi.
 
Enn sem komið er, er ég mest í lestri á skýrslum og öðru sem ég þarf að kunna skil á, þegar lætin byrja í ágúst;-)

Ég bý enn hjá Maríönnu minni í litlu íbúðinni hennar, þar sem ég er flutt með allt mitt hafurtask af Grenivöllum, í bílskúr hjá Guggu vinkonu minni á Engjavegi og bíð nú óþreyjufull eftir að núverandi leigjandi flytji út úr íbúðinni á Skólavöllum 8,  svo ég komist þar inn....

Eyddi dýrmætum sólardögum í pökkun og flutning fyrir norðan, var þar í hálfan mánuð og mátti m.a. moka út ónýtu dóti úr skúrnum mínum og senda beint á haugana:-( Þar hafði sprungið rör og nú er skúrinn minn lasinn og á leið í aðgerð.

Ég er búin að leigja hann með þeim skilmálum að leigjandinn fær að hafa hann í 1 ár gegn því að gera við hann, skipta um ofna, vegg og loftklæðningu, draga í nýtt rafmagn, mála og flota gólf. Við munum bæði koma vel út úr því,- held ég!

Íbúðina leigði ég svo líka til eins árs til að byrja með, þá set ég hana aftur á sölu og vona að markaðurinn hafi glæðst e-ð á árinu.

Mun líklega blogga e-ð í júlí, bara svona til að hafa eitthvað að gera....

Sólarknús á línuna og brosiði nú í sólinni;-)

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Guđrún Halla Jónsdóttir
  • Stađur: Selfoss
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstađa: sérstćđ
  • Um mig: Stór, skapmikil, skapgóđ, greind, gáfuđ, töffari af Guđs náđ, skemmtileg, sćt og góđ.
  • Annađ: Ég á fjögur dásamleg börn; Maríönnu Ósk, Bergţóru Kristínu, Brynjólf og Sigfríđi Aldísi og svo litlu gullstelpuna mína Öglu Bríeti barnabarniđ og puntrófuna

Auglýsing

ţađ eru fimmtíu ár síđan ég fćddist!!

Klukkan

Innskráningar kubbur

Baráttumál!

Gerum kröfu um ţyngri refsingar fyrir nauđganir á konum og kynferđisbrot gegn börnum!

Stöndum vörđ um menninguna, krefjumst aukinna styrkja til ađ halda uppi leiklist á landinu öllu!

Njótum ţess ađ vera til, sátt hvert viđ annađ!

Leit